Íþróttir fyrir iðkendur með mismunandi stuðningsþarfir

Aðalstjórn | 16. febrúar 2021

Íþróttir fyrir iðkendur með mismunandi stuðningsþarfir

Ungmennafélögin UMFN og Keflavík bjóða í sameiningu upp á námskeið í knattspyrnu og körfubolta fyrir börn með mismunandi stuðningsþarfir á aldrinum 6 -13 ára.
Æfingarnar verða fjölbreyttar og skemmtilegar og öllum iðkendum mætt á þeirra forsendum.
Námskeiðið hefst 28. febrúar og lýkur 25. apríl, gjald fyrir hvern iðkanda er 20.000 krónur.

Skráning er hafin á keflavik.felog.is og umfn.felog.is

 

Nánari uplýsingar veita Íþróttastjórar Keflavíkur og UMFN

Hjördís Baldursdóttir – hjordis@keflavik.is
Hámundur Örn Helgason – fotbolti@umfn.is