Rafíþróttadeild Keflavíkur tók þátt í haustmóti í rafíþróttum sem haldið var í Next Level Gaming í Egilshöll þann 25. október síðastliðinn. Níu iðkendur frá Keflavík mættu til leiks og stóðu sig með mikilli prýði í fjölbreyttum keppnisgreinum þar sem hart var barist, en ávallt af drengskap og virðingu fyrir öðrum keppendum.
Mótið var vel sótt en yfir 40 krakkar frá rafíþróttadeildum víðsvegar af landinu tóku þátt. Þar gafst iðkendum okkar gott tækifæri til að spreyta sig gegn öðrum, öðlast dýrmæta reynslu og kynnast öðrum ungum áhugamönnum um rafíþróttir.
Einn af keppendum Keflavíkur tók þátt í tveimur keppnisgreinum í Minecraft og gerði sér lítið fyrir og sigraði í byggingarkeppninni. Þema keppninnar var leikföng og útfærslan hans vakti athygli, en hann fyllti Minecraft-heim sinn af fjölbreyttum leikföngum. Þá var hann einnig afar nærri því að ná sigri í þrautakeppni mótsins og munaði þar litlu.
Roblox Rivals var fjölmennasta keppnisgreinin sem iðkendur Keflavíkur tóku þátt í. Þar var keppt í tveggja manna liðum og voru fjölmörg lið mætt til leiks. Liðin okkar sýndu góð tilþrif, áttu sterkar umferðir og fögnuðu nokkrum sigrum á leið sinni í gegnum keppnina. Þrátt fyrir góðan árangur dugði það ekki til að tryggja sæti í úrslitum.
Sérstaklega er ánægjulegt að sjá hversu vel iðkendur stóðu sig utan vallar sem innan. Keppnin var hörð og spennandi, en allir sýndu góða framkomu, íþróttamannslega hegðun og virðingu fyrir andstæðingum sínum. Þar var meðal annars að finna skemmtilegar viðureignir þar sem öll lið frá okkur mættust sín á milli.
Þátttaka í mótum sem þessum er mikilvæg fyrir Rafíþróttadeild Keflavíkur og þróun rafíþrótta almennt. Áhugi á greininni fer vaxandi og með fleiri slíkum viðburðum skapast tækifæri fyrir unga iðkendur til að þróa færni sína, kynnast öðrum og upplifa heilbrigða samkeppni í skipulögðu íþróttaumhverfi.
Markmið deildarinnar er meðal annars að styðja við þroska og framfarir ungra leikmanna, efla félagsleg tengsl og skapa jákvætt umhverfi þar sem allir geta lært, vaxið og notið sín.
Við hjá Rafíþróttadeild Keflavíkur erum stolt af okkar fólki, þátttöku þess og framkomu á mótinu. Við þökkum kærlega fyrir okkur og hlökkum til að halda áfram þátttöku okkar á mótum sem og þessu!
Hjördís Baldursdóttir sæmd silfurmerki ÍSÍ
Hjördís Baldursdóttir, íþróttastjóri Keflavíkur, íþrótta- og ungmennafélags, var sæmd silfurmerki Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) á 30 ára afmælishátíð Íþróttabandalags Reykjanesbæjar (ÍRB).
Hjördís hefur um árabil verið öflugur þátttakandi í íþróttahreyfingunni í Reykjanesbæ og lagt mikið af mörkum til uppbyggingar og eflingar íþróttastarfs á svæðinu.
Auk þess að gegna starfi íþróttastjóra Keflavíkur er Hjördís gjaldkeri ÍRB.  Hún sat í tíu ár eða frá 2006-2016 í stjórn knattspyrnudeildar Keflavíkur. Hún hefur því komið víða við og sinnt mikilvægum verkefnum, bæði innan félagsins og á vettvangi íþróttahreyfingarinnar í Reykjanesbæ.
Silfurmerki ÍSÍ er verðskulduð viðurkenning fyrir störf hennar og framlag til íþróttahreyfingarinnar.
Keflavík, íþrótta- og ungmennafélag, óskar Hjördísi innilega til hamingju með þessa glæsilegu viðurkenningu og þakkar henni fyrir ómetanlegt starf í þágu félagsins og íþróttahreyfingarinnar.
Áfram Keflavík! 💙
Kæru Keflvíkingar,
Við hjá Aðalstjórn Keflavíkur, íþrótta- og ungmennafélags, viljum kynna fyrir ykkur nýjung í starfi félagsins: Félagsmaður Keflavíkur.
Af hverju núna?
Á Íþróttaþingi 2025 samþykkti ÍSÍ breytingar á lögum sínum sem snerta öll íþróttafélög landsins. Nú er félögum skylt að halda bæði iðkenda- og félagaskrá, félagsmenn gangast undir lög og reglur síns félags og félögum er heimilt að takmarka þátttöku eða útiloka félagsmenn sem brjóta lög og reglur hreyfingarinnar. Við ákváðum að taka þessu fagnandi og gera úr því tækifæri til að efla félagið okkar.
Hver getur orðið félagsmaður?
Allir sem þess óska og samþykkja að gangast undir lög og skyldur félagsins, ungir sem aldnir.
Hvað fæ ég?
Aðeins félagsmenn hafa atkvæðarétt á aðalfundum félagsins og geta boðið sig fram til stjórnarsetu. Þeir sem kosnir eru í stjórn verða sjálfkrafa skráðir félagsmenn. Með öðrum orðum: félagsmenn ráða ferðinni.
Hvað kostar það og hvert fara peningarnir?
Aðalstjórn leggur til árgjald upp á 4.000 kr. Tekjurnar renna til Aðalstjórnar og eru haldnar aðskildar og eru ekki ætlaðar til að safnast upp, heldur til að efla aðstöðu íþróttafólksins og félagsins í heild.
Markmiðið okkar: 1.000 félagsmenn fyrir áramót! 🎯
Við vitum að sannir Keflvíkingar eru miklu fleiri en þúsund. Nú er tækifærið til að sýna það.
Hvernig skrái ég mig?
Skráning fer fram í Abler - Félagsmaður Keflavíkur
Einning má senda tölvupóst á hjordis@keflavik.is
Sjá nánar á heimasíðu Keflavíkur - https://www.keflavik.is/almennt/vertu-felagsmadur-keflavikur
Takk fyrir stuðninginn!
Áfram Keflavík! 💙
Aðalstjórn Keflavíkur, íþrótta- og ungmennafélags
Afmælisdagur Keflavíkur er í dag
Ungmennafélag Keflavíkur (UMFK) var stofnað þann 29. september 1929. Árið 1950 var Knattspyrnufélag Keflavíkur (KFK) síðan stofnað. Til að efla starfið og búa til öflugra lið sameinuðu þessi félög krafta sína árið 1956 og stofnuðu Íþróttabandalag Keflavíkur (ÍBK). Í áratugi kepptu öll lið bæjarins undir merkjum ÍBK.  Sjöundi og áttundi áratugurinn er oft kallaður gullaldartími Keflvíkinga í fótboltanum. Þá vann liðið sína fjóra Íslandsmeistaratitla (1964, 1969, 1971 og 1973) og var eitt albesta lið landsins. Margar goðsagnir léku með liðinu á þessum árum.  Á meðan fótboltinn blómstraði snemma tók körfuboltinn við keflinu sem helsta sigurgrein félagsins á níunda og tíunda áratugnum. Bæði karla- og kvennalið Keflavíkur hafa verið ótrúlega sigursæl. Gamli heimavöllurinn var oft kallaður „Sláturhúsið“ vegna þess hve gífurlega erfitt aðkomulið áttu með að sækja stig þangað.
Árið 1994 var ákveðið að leggja ÍBK-samstarfið formlega niður í þáverandi mynd. Félagið var þá sameinað undir nýjum hatti og upp frá því var formlega farið að nota nafnið Íþrótta- og ungmennafélagið Keflavík  í daglegu tali og í keppnum einfaldlega sem Keflavík.  Undir merkjum félagsins í dag starfa 9 deildir,  blak, badminton, fimleikar, fótbolti, körfubolti, rafíþróttir, skotfimi, sund og taekwondo.
Við óskum Keflavíkingum til hamingju með daginn
Keflavíkurmessan haldin í annað sinn
Keflavíkurmessan var haldin í annað sinn sunnudaginn 27. september og tókst einstaklega vel til.
Sveinn Ólafur Magnússon, formaður körfuknattleiksdeildar Keflavíkur, flutti góða og áhrifamikla ræðu um sjálfboðaliðastarf og mikilvægi þess fyrir íþróttahreyfinguna. Sjálfboðaliðar hafa í gegnum tíðina verið ein af grunnstoðum starfs Keflavíkur og framlag þeirra er félaginu ómetanlegt.
Unnur Ýr Kristinsdóttir, formaður fimleikadeildar Keflavíkur, og Breki Snær úr 2. flokki knattspyrnudeildar tóku einnig þátt í messunni og lásu ritningartexta.
Keflavík Íþrótta- og ungmennafélag vill færa öllum þeim sem mættu í Keflavíkurmessuna kærar þakkir fyrir komuna og ánægjulega samveru.
Við hlökkum til að halda þessari fallegu hefð áfram. 💙
Öflugur fræðsludagur Keflavíkur í Hljómahöll
Keflavík íþrótta- og ungmennafélag hélt í gær sinn árlega fræðsludag í Hljómahöll  og óhætt er að segja að dagurinn hafi tekist frábærlega!
Þetta var í annað sinn sem fræðsludagurinn er haldinn en hann er ætlaður þjálfurum og stjórnarfólki allra deilda Keflavíkur. Rúmlega 100 þjálfarar og stjórnarfólk mættu og tóku þátt í góðum og gagnlegum umræðum.
Við fengum þrjá frábæra fyrirlesara til okkar:
🔹 Ólafur Stefánsson ræddi um brottfall iðkenda úr íþróttum og hvað við getum gert til að skapa umhverfi þar sem börn og ungmenni vilja vera lengur í íþróttum.
🔹 Kristín Skjaldardóttir, samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs, fjallaði um samskipti þjálfara og foreldra og hversu mikilvæg góð, skýr og uppbyggileg samskipti eru í íþróttastarfinu.
🔹 Helgi Rafn Guðmundsson, þjálfari Taekwondodeildar Keflavíkur, fjallaði um aga í íþróttum og mikilvægi þess að skapa umhverfi þar sem væntingar, agi og jákvæð menning fara saman.
Það er mikill styrkur fyrir félagið að fá yfir 100 manns úr okkar röðum saman á einum stað til að fræðast og ræða málin.
Fræðsludagurinn er kominn til að vera og verður haldinn árlega sem hluti af því markmiði Keflavíkur að efla þjálfara og stjórnarfólk og gera starfið okkar enn betra.
Við færum Ólafi, Kristínu og Helga Rafni okkar bestu þakkir fyrir frábær og áhugaverð erindi og fyrir að deila þekkingu sinni og reynslu með okkur.
Einnig þökkum við öllum þjálfurum og stjórnarfólki sem mættu og tóku þátt í að gera daginn jafn góðan og raun bar vitni.
Takk fyrir frábæran dag – áfram Keflavík! 💙
Badmintonæfingar byrja laugardaginn 12. september.  Opnir tímar á laugardögum þar sem allir mega mæta í, hver tími kostar 500 kr per einstakling.
Æfingatímar:
09:05-09:55 og 10:00-10:50
Það eru spaðar  og plastfjarðrir á staðnum, æskilegt er að koma í íþróttafötum og inni íþróttaskóm.
Hægt er að senda fyrirspurnir á tölvupóst badkeflavik@gmail.com
Haustið er mætt og er skráing enn í gangi fyrir Rafíþróttadeild Keflavíkur. Vertu með í spennandi og skemmtilegu tímabili hjá okkur þar sem við hreyfum okkur og fræðum, og æfum okkur svo með markmiði!
Við byrjum 7. september og klárum 18. desemember.
Opið er fyrir 5 hópa yfir tímabilið, þar af einn stelpuhóp, og er hver hópur takmarkaður við 15 sæti.
Skráning fer fram inn á Abler.io