Umhverfisdagur Keflavíkur 2015
Umhverfisdagur Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags var haldinn í gær þriðjudaginn 28. apríl.
Yfir sextíu manns tóku þátt í deginum sem var frábær. Eftir að búið var að fara yfir svæðin á starfssvæði félagsins og týna upp rusl var fólki boðið upp á grillaðan hamborgara að hætti formannsins ásamt gosi og Flóridana safa í félagsheimili okkar. Grillaðir voru áttatíu hamborgarar.
Það er okkar markmið að vel sé gengið um keppnissvæði og nærumhverfi félagsins, þau séu snyrtileg og okkur til sóma. Viljum við því sýna gott fordæmi með því að vera í farabroddi að halda okkar nærumhverfi hreinu. Ennfremur viljum við beina þeim tilmælum til stuðningsmanna okkar og annarra velunnara sem koma og styðja við bakið á iðkendum og brýna jafnframt fyrir þeim að ganga ætíð vel um íþróttasvæðin „Hreint land fagurt land“.
Samstarfsaðilar okkar á Umhverfisdeginum eru: Reykjanesbær umhverfissvið (-sá um ruslapoka og að farga því rusli sem safnaðist eftir tiltekt-), Víkurfréttir (-sá um að fjalla um Umhverfisdaginn-), Samkaup (-tók þátt í grillinu- ), Körfuknattleiksdeild Keflavíkur (-sá um hamborgarana-), Myllan (-sá um hamborgarabrauðin-) og Ölgerðin (-sá um drykkina-).
Þessum aðilum viljum við þakka sérstaklega fyrir að taka þátt í þessum degi með okkur.
Einnig þökkum við félagsmönnum okkar fyrir þeirra framlag.
Einar Haraldsson formaður
Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags.