Aðalfundur Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags 2022
Aðalfundarboð
Boðað er til aðalfundar Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags mánudaginn 28. febrúar kl. 19:00
í félagsheimili okkar að Sunnubraut 34 efri hæð.
Venjuleg aðafundarstörf.
Dagskrá aðalfundar:
- Fundarsetning.
- a) Kosinn fundarstjóri b) Kosinn fundarritari.
- Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram.
- Formaður félagsins leggur fram skýrslu aðalstjórnar um starfsemi og framkvæmdir á liðnu starfsári.
- a) Gjaldkeri félagsins leggur fram og útskýrir endurskoðaða reikninga aðalstjórnar og félagsins í heild fyrir liðið starfsár til samþykktar. b) Lögð fram fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár.
- Ávörp gesta
- Lagðir fram reikningar fastra nefnda til samþykktar.
- Lagabreytingar sbr. 7. gr. og 10. gr.
- Kaffi hlé.
- Kosinn formaður til eins árs.
- Kosnir 2 menn í stjórn til tveggja ára.
- Kosnir 3 menn í varastjórn til eins árs.
- Kosnir 2 skoðunarmenn reikninga og einn til vara.
- Kosning fastra nefnda er aðalfundur ákveður.
- Ákveðið félagsgjald.
- Önnur mál.
- Fundarslit.
Úrdráttur úr lögum Keflavíkur
Aðalfundur félagsins.
- gr.
Framboð til formanns skal berast skrifstofu félagsins eigi síðar en 5 dögum fyrir auglýstan aðalfund félagsins. Komi fleiri en eitt framboð til formanns þá skal kosið á milli þeirra sem hafa gefið kost á sér. Ekki er heimilt að koma með tillögur um formann á aðalfundi.
- gr.
Aðalfundur félagsins hefur æðsta vald og ákvörðunarrétt í öllum málum þess. Skal hann haldinn eigi síðar en 1. mars ár hvert. Auglýsa skal aðalfundinn opinberlega á heimasíðu félagsins með minnst 2 vikna fyrirvara. Í aðalfundarboði skal kynna dagskrá, fundartíma og fundarstað. Þá skal geta sérstaklega í fundarboði hvenær frestur til að skila inn framboði til formanns rennur út. Aðalfundurinn telst lögmætur ef löglega er til hans boðað.
Tillögum um breytingar á lögum félagsins skal senda aðalstjórn eigi síðar en 3 vikum fyrir aðalfund. Heimilt er þó að taka fyrir á aðalfundi tillögur til breytinga á lögum félagsins, sem síðar koma fram ef 2/3 hlutar viðstaddra atkvæðisbærra fundarmanna eru því samþykkir.
Fyrir hönd aðalstjórnar
Keflavíkur
Einar Haraldsson formaður