Fréttir

Jón Norðdal aðstoðar Helga Jónas
Karfa: Karlar | 1. júní 2014

Jón Norðdal aðstoðar Helga Jónas

Jón Norðdal Hafsteinsson, fyrrum leikmaður Keflavíkur og landsliðsins, hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá Keflavíkur til næstu tveggja ára. Auk þess að aðstoða Helga Jónas Guðfinnsson með meistaraflokk karla mun Jón þjálfa unglingaflokk karla.

Jón, sem er menntaður íþróttafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík, hefur m.a. þjálfað 10., 11. og drengjaflokk félagsins undanfarin ár en óhætt er að segja að með Jóni komi að auki hellings reynsla enda hefur hann spilað hundruði leikja fyrir Keflavík og landslið Íslands.

Mikil ánægja ríkir með að Jón hafi verið tilbúinn að taka slaginn með Keflavík í vetur og er vænst mikils af samstarfi hans og Helga.

Mynd: Sævar Sævarsson, varaformaður Keflavíkur, og Jón Norðdal Hafsteinsson handsöluðu samninginn yfir tíu dropum af kaffi.