Hlé á æfingum
Tilkynning
Í ljósi stöðunnar um fjölgun fólks í sóttkví og smita á Suðurnesjum þá hefur Keflavík, Íþrótta og Ungmennafélag ákveðið að gera hlé á öllum æfingum í barna og unglingastarfi félagsins frá og með deginum í dag ( athugið engar æfingar í dag). Þetta á við um allar deildir félagsins. Gert er ráð fyrir að æfingar hefjist aftur 21.október nk. að loknu vetrarfríi skólanna.
Við biðjumst velvirðingar á stuttum fyrirvara en hlutirnir eru fljótir að breytast á tímum Covid.
Við hvetjum alla til að huga að persónulegum sóttvörnum,andlegri og líkamlegri heilsu og fara eftir tilmælum yfirvalda svo við getum komist í veg fyrir frekari aukningu smita.
Áfram Keflavík