Fréttir

Aðalfundarboð deilda Keflavíkur 2015
Aðalstjórn | 7. janúar 2015

Aðalfundarboð deilda Keflavíkur 2015


AÐALFUNDIR DEILDA KEFLAVÍKUR ÁRIÐ 2015
 

Deild/aðalstjórn                      Dagsetning                              Tímasetning    Staðsetning

Blakdeild                        mánudagur 19.    janúar kl. 20,00   Sunnubraut 34

Badmintondeild             þriðjudagur 20.    janúar kl. 20,00   Sunnubraut 34

Taekwondodeild            fimmtudagur 22.    janúar kl. 20,00 Sunnubraut 34

Skotdeild                        laugardagur 24.   janúar kl. 14,00   Sunnubraut 34

Sunddeild                       mánudagur 26.    janúar kl. 20,00   Sunnubraut 34

Körfuknattleiksdeild      þriðjudagur 27.    janúar kl. 20,00   Sunnubraut 34

Fimleikadeild                  miðvikudagur 28. janúar kl. 20,00   Akademíunni

Knattspyrnudeild           fimmtudagur 29.  janúar kl. 20,00   Sunnubraut 34

 

 

Fh.aðalstjórnar Keflavíkur

Einar Haraldsson

 

 

Í 20.gr. laga segir að þeir aðilar sem hafa áhuga á að bjóða sig fram til formanns skulu senda inn til aðalstjórnar 5 dögum fyrir aðalfund framboð sitt.

Úrdráttur úr lögum félagsins.

Deildir, starfssvið.

19. gr.

Hver deild innan félagsins skal hafa sérstaka stjórn, sjáfstæðan fjárhag og kennitölu, en starfar á ábyrgð og forræði aðalstjórnar félagsins. Hver deild skal vera fjárhagslega sjálfstæð og skal hafa tekjur af félagsgjöldum félagsmanna deildarinnar, af ágóða íþróttamóta og öðrum fjáröflunum sem hún tekur sér fyrir hendur í samráði við aðalstjórn félagsins.  Allar meiriháttar fjárhagslegar ákvarðanir einstakra deilda ber að leggja fyrir aðalstjórn til samþykktar.  Í hverri deild skal skrá í sérstaka bók eða í tölvu úrslit kappleikja og árangur einstaklinga eða annað markvert sem fram fer innan deildarinnar.

 

Aðalfundir deilda.

20. gr.

Framboð til formanns skal berast skrifstofu félagsins eigi síðar en 5 dögum fyrir auglýstan aðalfund deildarinnar. Komi fleiri en eitt framboð til formanns þá skal kosið á milli þeirra sem hafa gefið kost á sér. Ekki er heimilt að koma með tillögur um formann á aðalfundi deildarinnar.

21. gr.

Aðalfundir deilda félagsins skulu haldnir eigi síðar en 1. febrúar ár hvert. Allir skuldlausir félagsmenn deildarinnar, 16 ára og eldri  hafa atkvæðisrétt og kjörgengi á aðalfundi deildarinnar. Til aðalfundar deildarinnar skal boðað með viku fyrirvara með auglýsingu opinberlega á heimasíðu félagsins. Í aðalfundarboði skal kynna dagskrá, fundartíma og fundarstað. Þá skal geta sérstaklega í fundarboði hvenær frestur til að skila inn framboði til formanns rennur út. Aðalfundur deildar er löglegur ef löglega er til hans boðað.

 

22. gr.

Dagskrá aðalfunda deilda félagsins skal vera sem hér segir:

1. Fundarsetning.

2.    a) Kosinn fundarstjóri

b) Kosinn fundarritari.

3. Fundargerð síðasta aðalfundar skal leggja fram.

4. Formaður deildar leggur fram skýrslu deildarstjórnar um starfssemina á liðnu starfsári.

5. Gjaldkeri deildar leggur fram og útskýrir endurskoðaða reikninga deildarinnar fyrir liðið starfsár.

6. Ávörp gesta.

7. Kosningar:

a) Kosinn formaður til eins árs.

b) Kosnir 2 meðstjórnendur til tveggja ára.

c) Kosnir 3 menn í varastjórn.

d) Kosnir 2 skoðunarmenn reikninga og einn til vara.

e) Kosið í nefndir og ráð sem aðalfundur ákveður.

8. Ákveðið æfingargjald fyrir næsta starfsár.

9. Lögð fram fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár.

10. Önnur mál.

11. Fundi slitið.

Heimilt er að kjósa færri eða fleiri í stjórn deildar, enda hafi aðalstjórn félagsins samþykkt þá ráðstöfun fyrir aðalfund deildarinnar.

 

23. gr.

Á aðalfundi deildar ræður meirihluti atkvæða úrslitum allra mála. Kosning deildarstjórnar skal vera skrifleg ef þess er óskað. Ef atkvæði eru jöfn skal kosið að nýju, bundinni kosningu. Verði þá atkvæði enn jöfn skal hlutkesti ráða.

 

 

24. gr.

Vanræki deild að halda aðalfund á lögákveðnum tíma skal aðalstjórn félagsins boða til fundarins og sjá um framkvæmd hans.

 

25. gr.

Stjórn hverrar deildar félagsins skipa 5 menn. Formaður skal kosinn sérstaklega til eins árs í senn. Aðrir stjórnarmenn skulu kosnir þannig: tveir til tveggja ára. Árlega skal kjósa þrjá menn í varastjórn og tvo skoðunarmenn reikninga og einn til vara. Heimilt er stjórninni að skipa starfsnefndir sér til aðstoðar við sérstök verkefni eða ákveðna þætti starfsins, telji hún þess þörf.